Allt og ekkert um mig og mína

Velkomin

11.06.2010 11:57:20 / stina

sumar

bara láta vita að við erum lífs ;) 2 lotur af 3 búnar á sumarönninni svo að það hyllir undir sumar"frí" sem verður hreint ekkert frí heldur BS ritgerðarbrjálæði

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2010 12:39:58 / stina

Styttist í fermingu

Þið verðið að fyrigefa hvað ég er löt við að skrifa inn á þessa síðu, einhvern vegin gleymist hún alltaf eða fellur í skuggann af facebook.
Það styttist ískyggilega í ferminguna hennar Freyju en hún fermist á Skagaströnd eftir viku (23. maí), Það verður góður dagur hjá okkur þá efa ég ekki enda alltaf gaman að hitta vini og fjölskyldu. Það er einhvern veginn allt of sjaldan sem það tekst að hitta alla.
Fyrir þá sem vilja fylgjast meira með okkur (þ.e. gera það ekki nú þegar) þá bendi ég þeim sömu á að leita bara að okkur á "fésinu"

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2009 10:15:29 / stina

langt síðan síðast

ég var næstum að gleyma þessari síðu :)
Það er búið að vera alveg þokkalegt að gera í náminu og með litla skottið en hefur allt gengið upp enda hef ég ómetanlega hjálp í Rósu. Hera stækkar og stækkar :) eins og barna er von og vísa, hún fer að verða búin að þrefalda fæðingarþyngdina.
Nú er ég komin í jólafrí og mér finnst það ansi ljúft, verst að ég nenni ósköp lítið að gera nema slugsast hehe.. Við skruppum norður um síðustu helgi og okkur fannst það ansi notalegt, næsta norðurferð verður síðan í janúar ef fer sem horfir.
knús á alla
chao


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 14:46:05 / stina

örstutt færsla

litla skvísan hlaut nafnið Hera Rakel :d

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2009 14:43:01 / stina

bara góðar fréttir

hér gengur allt vel, litla skotta stækkar og styrkist og við hinar allar erum sprækar :)
Það stendur til að skíra lítluna á morgun

ég er búin að setja inn í albúm nokkrar myndir af henni, þær er hægt að skoða hér


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2009 12:41:19 / stina

Góðan dag

Hér hjá okkur er allt gott að frétta, ég fékk að fara heim með litlu snúlluna á mánudaginn :) og við höfum það rosa fínt. Freyja byrjuð í skólanum auðvitað, búin að fara í viku í fermingarbarnaferð í Vatnaskóg og svo núna tveggja daga ferð með skólafélgum í Skorradalinn. Rósa á afmæli á morgun og er að verða 22 ára ! segi og skrifa! mér finnst það ákaflega skrítið þar sem mér finnst hreint ekkert svo rosalega langt síðan hún var pínupons hehe. Mútta ætlar að kíkja í heimsókn um helgina, hún er í nokkurra daga fríi og svo á hún líka alveg eftir að sjá nýja ömmubarnið :) Lísa ætlar að reyna að koma á morgun líka svo að ég vonandi verð með "fullt hús" :)
Svo þurfum við að fara að huga að því að skíra litluna ;) en dagsetning á því er ekki orðin ljós ennþá, ja og ekki staðsetningin heldur.
Best að hætta þessu bulli í þetta sinn

hafið það sem allra best


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2009 21:36:15 / stina

fréttir

það er búið að vera viðburðaríkt sumar, fórum norður strax eftir prófin og byrjuðum að vinna þ.e. ég og Freyja :) Rósa var farin talsvert fyrr.  Ég fór í sónar á Króknum því að það þurfti að tékka á fylgjunni og þar var gerð stærðarmæling á krílinu um leið. Þá kom í ljós að skvísan virtist vera talsvert vaxtarskert og vildi læknirinn þar að ég færi strax daginn eftir í fullkomari sónar á Akureyri, þar var vaxtarskerðingin staðfest og flæðismæling gerð sem kom bara vel út. Ég þurfti síðan að fara vikulega í tékk norður í bæði flæðismælingu og vaxtarmælingu. Alls fór ég 6 ferðir þangað en svo kom að því að fara suður á Bifröst aftur og þá vildi Alexander yfirlæknir að ég færi í áframhaldandi tékk á LSH en ekki á Akranes og einnig mælti hann með að ég yrði látin eiga 1 - 2 vikum fyrir tímann. Strax í fyrsta tékki á LSH kom í ljós að flæðið í naflastrengnum var að byrja að skerðast svo að það var drifið í að ákveða tíma í gangsetningu sem fyrst og var ákveðið að ég myndi mæta kl 8:30 föstudaginn 21.ágúst. Það gekk ekki alveg þrautalaust að koma mér almennilega í gang en þegar það loksins tókst þá tók fæðingin ekki langan tíma þó að heildar tíminn hafi verið langur allt í allt. Litla grjónið fæddist kl 3.02 þann 22.ágúst, hún var 1860 gr og 43,5 cm, grét strax kröftuglega en var samt drifin inn á vökudeild í eftirlit þar sem hún var svo litil. Hún plumaði sig vel og er dugleg að drekka og losnaði út af vökudeildinni 26.ágúst þá búin að ná upp í fæðingarþyngdina aftur og 10 gr. betur en samt mátti ég ekki fara með hana heim alveg strax og erum við búnar að vera á sjúkrahótelinu síðan þá og verðum fram á mánudag en þá fer ég með skvísuna í tékk og síðan að öllum líkindum heim því að hún er hreint svakalega dugleg að drekka :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 13:10:31 / stina

Halló, halló

Þá er sumarlotan búin, fyrir allnokkru reyndar ;)
allar einkanir komnar í hús og hafði ég það í gegnum þetta skólaár án þess að falla í nokkru fagi, vona að svoleiðis verði það áfram en það kemur í ljós.
Ég er á norðurlandinu og er að leysa af á mínum gamla stað, sveitarfélagsskrifstofunni... líka stendur til að ég kíki í afleysingu á gamalkunnum slóðum líka þ.e. hafnarvigtinni en ég veit ekki hversu mikið það verður... heilsan og úthaldið verður að leiða það í ljós.
Ég er líka þessa dagana að leika jójó milli Skagastrandar og Akureyrar þar sem litla skottið mitt virðist vera lítið og nett og vilja þessir doksar fylgjast vel með að allt sé í orden.

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2009 13:55:59 / stina

Góðan daginn

Nú er sumarlotan alveg að verða búin og mikið lifandis ósköp er ég fegin :) hehe þetta er búin að vera allrosaleg törn.... alls eru þetta 80 einingar sem er búið að pæla í gegn um síðan í haust og það er nú alveg slatti.
Lokaprófið verður á föstudaginn og þá ælta ég að fara norður, þ.e. ef ég verð búin að nenna að pakka niður annars fer ég á laugardaginn :)
Ég er bara ein heima núna, Rósa á Skagaströnd að vinna, Lísa í Reykjavík að passa og svo er Freyja þar núna líka í nokkra daga.... skrítið að vera ein, það er hreint ekki oft sem það gerist, þó að reyndar sé ég auðvitað ekki alein ;) hehe
Veit ekki hvað ég ætti að rausa meira í bili....

hafið það sem allra best


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2009 15:51:05 / stina

héðan er allt gott að frétta, allir að verða sprækir eftir flensuskotið sem herjaði á 2 fjölskyldumeðlimi. Skólinn hjá mér gengur bara vel, sumarönnin hálfnuð og verður búin 26.júní. Það verður fínt að fá smá frí þó að ég komi til með að nota það til að vinna ef heilsan leyfir sem eru allar líkur á enn sem komið er allavega.
Nýji fjölskyldumeðlimurinn er svo væntanlegur einhvern fyrstu daganna í september og vonandi þarf ekki að bíða jafn lengi eftir því eins og systrunum :) skólinn byrjar líka á sama tíma, eða 1.sept, en lokaplönun á haustönninni verður ekki full ljós fyrr en í lok ágúst en líklegast er að ég fái að taka viðskiptafögin í hálfgerðu fjarnámi en lögfræðifögin verð ég að mæta í... þetta kemur allt í ljós.
Sjómannadagshelgin um næstu helgi og þá förum við að sjálfsögðu norður :) gætum ekki hugsað okkur að missa af því.

En jæja best að hætta þessu þvaðri í þetta sinn

hafið það sem allra best og munið að það er alveg óhætt að sletta hér inn smá kommenti ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2009 11:26:18 / stina

best að skutla einhverju hér inn :)

Nú er vorönnin formlega búin en sjúkraprófin samt eftir. Sumarönnin byrjar á International commercial law og kennt á ensku.... arfaleiðinlegt, fag allavega enn sem komið er en gæti alveg átt eftir að lagast ;)
Missóið gekk vel, fengum gott feedback og stóðum okkur bara vel í málsvörninni finnst mér. Mig er nú mikið farið að hlakka til að fara í "sumarfrí" þó að ég komi til með að vera að vinna... þá verður samt fínt að hvíla smá. Ég er svo farin að plana hvernig ég ætla að tækla haustönnina, en ég held að þetta komi allt til með að ganga upp... hluti fjarnám og hluti staðarnám.

Þessa helgina eru Lísa og Freyja í Reykjavíkinni og við Rósa bara að dúllast í rólegheitunum heima... ætli ég taki ekki tangó með ryksugu og skúringagræjum svona mér til skemmtunar :) eða þannig hehe. Annars er alveg að verða kominn heimilisbragur á íbúðina, flest allt að verða komið á sinn stað, en ég á þó enn eftir að nenna með tómukassa hrúguna í gám en það kemur að því.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 12:14:21 / stina

Jahá

ég var nú næstum búin að gleyma þessari síðu, enda þótt margir lesi þá fæ ég frekar lítið "feedback" svo ég sletti nú aðeins :)

Af okkur er allt ágætt að frétta, vorönninni er að verða lokið hjá mér, 3 einkanir komnar í hús en eitt próf er eftir sem ég þarf að taka sjúkrapróf í og svo er auðvitað eftir að komast gegnum málsvörnina í missó en það hlýtur að takast. :)

27.apríl byrjar svo sumarönnin og hún er svo búin í júnílok, þá er stefnan tekin norður og áætlað að vera þar fram að miðjum ágúst.... ef allt fer eins og það á að gera.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2009 10:45:10 / stina

Fátt að frétta svosem

Lífið gengur sinn vana gang, sofa, borða, læra... alveg sama hvaða fjölskyldumeðlimur á í hlut :) Lísa er komin til okkar aftur og það finnst mér ákaflega notalegt.
Prófin fara að byrja hjá mér... almenn lögfr á mánudag, félagaréttur á þriðjudag, stærðfræðin á miðvikudag og svo rekstrarhagfræðin á föstudag, það verður ansi fínt þegar það er búið. Eftir það byrjar missóvinnan :) mig bæði hlakkar til og kvíðir fyrir því þetta er tööörn sem lýkur eftir páska... og þá tekur sumarönnin við.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2009 09:37:15 / stina

Rúur og stúur

búa heima hjá mér þessa stundina, er semsagt flutt með allt mitt hafurtask en hef ekki haft tíma til að raða enn... svo að það eru skáskot og hindrunarhlaup sem þarf til að komast um nýju íbúðina hehe, en það stendur til bóta, hlýt að hafa frið um helgina til að gera eitthvað í því máli. Ég fór í skreppitúr norður í vikunni, norður á þriðjudag og svo suður aftur seinnipart miðvikudags, ógeðsleg hálka á leiðinni en heldur verri þó á norðurleiðinni  enda tók ég smá hopp og skopp við hringtorgið á Blönduósi, þó að hraðinn væri ekki mikill þá bara gerðist ekkert þegar ég reyndi að hægja á... hehe og þó byrjaði ég að reyna það löööngu fyrr en venjulegt er... en sem betur fer hafði ég því nógan tíma til að skipuleggja hvernig ég færi gegnum torgið þó að það væri ekki gert alveg með hefðbundnum hætti...
en jæja... skýrslu lokið í bili
hafið það sem allra best

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 11:45:33 / stina

Tíminn líður hratt

á gerfihnattaöld hehe
en já það er komin febrúar og það meira að segja miður febrúar.... ég er komin með lykla af nýju íbúðinni en gengur hægt að flytja... það er svo kalt að maður veigrar sér við að fara út brrrrr auk þess sem ég bara verð að viðurkenna að skrokkurinn minn þolir illa þessar fj... tröppur upp á þriðju hæð. En þetta hlýtur að hafast á endanum. Er komin í pappakassatangó aftur, og ég sem var búin að sverja að gera þennan fjanda ekki næstu 2-3 árin 8|
Við fórum norður á þorrablót um síðustu helgi og skemmtum okkur hið besta, þetta var fyrsta blótið hennar Lísu :)
Hún kom svo hingað til okkar í gær, þar sem henni var boðið að vera með í skólahreystiferð krakkanna hér á Varmalandi, síðan ætla þær báðar að eyða helginni í bænum.

Skólinn gengur ágætlega nema að því leyti að mér er fullkomlega fyrirmunað að skilja þörfina á því að læra diffrun og fleira því tengt.... og enn sem áður er enginn kennari sem getur á vitrænan hátt útskýrt notagildi þessara þvælu. Það kemur bara sama svar og frá þeim sem ég hef áður spurt... af því bara... væri gott ef þú ætlar að læra eðlisfræði eða stjörnufræði :evil:  EINS OG ÞAÐ SÉU EINHVERJAR LÍKUR Á AÐ ÞAÐ HVARFLI AÐ MÉR???


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 18 dögum
Litla dúllan hún Hera verður eins árs!